Visithorga.is

Leikfélag Hörgdæla er eitt öflugasta áhugaleikfélag landsins og stendur reglulega fyrir metnaðarfullum leiksýningum. Formaður leikfélagsins er Bernharð

Leikfélag Hörgdæla

Leikfélag Hörgdæla er eitt öflugasta áhugaleikfélag landsins og stendur reglulega fyrir metnaðarfullum leiksýningum.
Formaður leikfélagsins er Bernharð Arnarson, sími 659 0578.

Leikfélag Hörgdæla er aðili að Bandalagi íslenskra leikfélaga.


maí 2012
Uppákomur á Melum
Miðvikudagskvöldið fyrir Skírdag var haldin "gamaldags kvöldvaka" á Melum og var það hluti af mánaðarlegum uppákomum Leikfélags Hörgdæla sem við erum að gera tilraunir með. Kvöldvakan tókst með eindæmum vel og erum við í stjórninni afskaplega ánægð með útkomuna. Þarna var á boðstólum söngur, hljóðfæraleikur, kveðskapur og frásagnir og skemmtu gestir sér vel. Vöfflurnar og kleinurnar runnu ljúflega niður með skemmtiatriðunum þó að Jón hefði nú viljað hafa meira aksjón í sjoppuni. Mæting fór fram úr okkar björtustu vonum en það voru eitthvað á mili 50 og 60 mans sem áttu huggulega kvöldstund á Melum við kertaljós og vöffluilm.
Fyrirhugaðar eru tvær uppákomur í viðbót áður en sumarið skellur á og vonandi náum við að halda þeim áætlunum en síðan tökum við væntanlega upp þráðinn aftur í haust, allavega þar til næsta uppfærsla Leikfélagsins tekur hug okkar allan en á meðan á því stendur gerum við hlé á svona uppákomum.
Gaman væri að fá ykkar innlegg um hvað ykkur, kæru félagar, langar til að hafa á boðstólum á svona uppákomum og ef þú lummar á sniðugri hugmynd endilega komdu henni á framfæri við okkur í stjórn félagsins, við erum opin fyrir öllu.
Hugmyndir eru um: bingó, tiltektardag í húsinu með grillveislu um kvöldið ( líklega í byrjun júní ) trúbadorakvöld, hagyrðingakvöld, spurning um að skella á einu sumarballi í húsinu?, hvað sem er kemur til greina þannig að nú er um að gera að koma með hugmyndir !!!
HLÖKKUM TIL AÐ HEYRA FRÁ YKKUR
KOMA SVO !!!

apríl 2012
Passíusálmalestur
Passíusálmar Hallgríms Péturssonar verða lesnir á Föstudaginn langa í Möðruvallakirkju í Hörgárdal og hefst lesturinn kl. 13:00 og gert er ráð fyrir að honum ljúki um kl. 17:30.
Þetta er í tólfta skiptið sem Möðruvallaklaustursprestakall og Leikfélag Hörgdæla standa fyrir þessum upplestri og er fólk hvatt til að mæta og eiga samverustund í kirkjunni.

apríl 2012
Kvöldvaka
Við bjóðum ykkur velkomin á Mela miðvikud.kvöldið 4. apríl kl. 20:30. Á dagskránni verða til dæmis:
Hákon Guðni (ættaður frá Fornhaga) syngur og spilar á gítar, Doddi ∆ og ferðasaga Leikfélags Hörgdæla í Iðnó, Silva Rún (ættuð frá Þrastarhóli) syngur, Guðmundur Víkings. fer með kveðskap og eitthvað fleira óvænt og skemmtilegt...
Endilega látið sjá ykkur sem flest því þið viljið ekki missa af þessu. Aðgangseyrir eru litlar 1.000.- kr fyrir fullorðna og 500 kr. fyrir grunnskólabörn en innifalið í aðgangseyri er kaffi, djús, vöfflur og kleinur en síðan verður sjoppan opin þar sem hægt er að kaupa gos og öl og eitthvað fleira.
ps: Það er ekki of seint að vera með, ef þú lummar á atriði, ekki vera feiminn við að láta ljós þitt skína.
Hlökkum til að sjá sem flesta á Melum á miðvikudagskvöldið.
Komum saman og eigum notalega kvöldstund á Melum - með gleði í hjarta.

mars 2012
Ferðasaga Guðríðar - tilboð til félaga í Leikfélagi Hörgdæla
Leiksýningin Ferðasaga Guðríðar verður sýnd í Hlöðunni, Litla-Garði, sunnudaginn 25. mars kl. 20:00. Þetta er skemmtileg sýning um Guðríði Þorbjarnardóttur, kraftmikla og víðförla konu á landnámsöld.
Þórunn Erna býður félögum í Leikfélagi Hörgdæla miðann á 2.000 kr.
Þeir sem hafa áhuga á að nýta sér þetta frábæra tilboð skulu senda línu á Skúla Gautason, skuligauta(a)gmail.com með nafni og miðafjölda.
Sjá plakat hér.

mars 2012
Kvöldvaka á Melum
Nú er tækifærið !!!
Miðvikudagskvöldið 4.apríl nk. er fyrirhugað að hafa "gamaldags" kvöldvöku á Melum og nú auglýsum við eftir atriðum. Hefur þig ekki alltaf langað til að troða upp en vantað tækifærið eða kjarkinn? Hvort sem þig langar að syngja, dansa, vera með uppistand, húslestur, leikþátt eða bara trommusóló, næstum því hvað sem er kemur til greina.
Ef þú hefur áhuga á að taka þátt þá er einfalt að hafa samband við Fanneyju í síma 695 7185 eða Benna í síma 659 0578. Ekkert aldurstakmark og þátttakendur þurfa ekki að vera skráðir í leikfélagið.
KOMA SVO !!!
Gerum nú kvöldið eftirminnilegt og skemmtilegt.

febrúar 2012
Skemmtikvöld á Melum
Leikfélag Hörgdæla verður með skemmtikvöld á Melum föstudagskvöldið 2. mars og hefst gleðin kl: 20:30.
Jón Gunnar verður með „pub quiz“ en hann er frægur fyrir frábær spurninga-kvöld á Akureyri. Hugsanlegt er að hann verði með aðra leiki.
Gítar verður á staðnum og hljóðnemi til að syngja í.
Munið að maður er manns gaman og mætum á Mela til að eiga skemmtilega kvöldstund saman.
Léttar veitingar verða til sölu.


október 2011
Metaðsókn
Leikfélag Hörgdæla tók hina geysivinsælu sýningu Með fullri reisn aftur til sýninga nú í haust og virðist ekki hafa verið vanþörf á því, það hefur verið mjög góð aðsókn og er nú uppselt á allar sýningar sem fyrirhugaðar eru á Melum. Síðan ætla leikfélagsmenn og -konur að halda í leikferð til Reykjavíkur. Verður leikritið sýnt á fjórum sýningum í Iðnó dagana 11. og 12. nóvember. Aðeins eru örfáir miðar eftir á þær sýningar og má finna þá á midi.is. Það stefnir í að heildarfjöldi áhorfenda verði vel yfir 4.000 á 44 sýningum. Þannig telst sýningin vera í hópi vinsælustu sýninga sem settar hafa verið upp hjá áhugaleikfélögum hérlendis frá upphafi.

október 2011
Með fullri reisn - auglýsing 10 - smellið HÉR

september 2011
Aðalfundur
Leikfélag Hörgdæla heldur aðalfund sinn á Melum, Hörgárdal, þriðjudagskvöldið 4. október nk. kl. 20:30. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf. Rætt verður um starfið á komandi vetri. Allir áhugasamir er hvattir til að mæta og hafa þannig áhrif á stefnu og starf félagsins. Nýir félagar velkomnir.

maí 2011
Naktir, misvel vaxnir norðlenskir bændur slá í gegn
Leikfélag Hörgdæla hefur nú gert hlé á sýningum á leikritinu Með fullri reisn eftir Terrence McNally, í leikstjórn Jóns Gunnars Þórðarsonar. Sýningar hefjast á ný í haust. Verkið hefur verið sýnt fyrir fullu húsi í Félagsheimilinu Melum í Hörgársveit frá því í byrjun mars.
Hörgdælskir bændur voru í aðalhlutverkum en þeir þurfa nú að snúa sér alfarið að sauðburði og öðrum vorverkum heima við og hafa því ekki tíma til að striplast á Melum.
Í leikritinu Með fullri reisn er fjallað um atvinnulausa karla sem reyna að skapa sér tekjur með nektardansi. Hinir hörgdælsku hafa ekki látið sig muna um að klæða sig úr hverri spjör kvöld eftir kvöld. Gríðarlega góð aðsókn hefur verið að verkinu, nánast fullt út úr dyrum á hverri sýningu og biðlisti eftir miðum lá fyrir þegar vorið bankaði upp á með tilheyrandi önnum til sveita. Þar sem enn var til staðar áhugi á að berja hina fáklæddu hörgdælsku bændur augum hefur verið ákveðið að hefja sýningar á ný á komandi hausti, eða í október.
Nekt selur
„Það virðist ekki vera neitt lát á vinsældum verksins, en við verðum því miður að gera hlé á sýningum því önnur störf kalla, vorannir eru framundan,“ segir Bernharð Arnarson formaður Leikfélags Hörgdæla, en alls eru 30 sýningar að baki og áhorfendur um 2.800 talsins. Ákveðið var í ljósi vinsælda og fjölda skráninga á biðlista að taka verkið til sýninga á ný þegar um hægist hjá bændum í haust. Bernharð segir fólk afskaplega ánægt með hversu vel tókst til og að verkið hafi algjörlega slegið í gegn. Mikið var um aðkomufólk á sýningum félagsins í vetur og komu sumir um langan veg til að sjá sýninguna. „Við teljum okkur hafa sannað að nekt selur, sama í hvaða mynd hún er, misvel vaxnir bændur sem fækka fötum hafa greinilega mikið aðdráttarafl,“ segir Bernharð. (Frétt úr Bændablaðinu/MÞÞ)

apríl 2011
Með fullri reisn - auglýsing 9 - smellið HÉR
Með fullri reisn - auglýsing 8 - smellið HÉR

apríl 2011
Metaðsókn á Melum
Leikfélag Hörgdæla sýnir um þessar mundir leikritið Með fullri reisn fyrir fullu húsi helgi eftir helgi. Þegar hafa verið sýndar 18 sýningar og hefur verið uppselt er á þær allar, auk þess sem nokkur hundruð manns eru á biðlista. Það stefnir í að áhorfendafjöldi verði hátt í 3.000 manns. Síðasta sýning verður 7. maí, en það verður þrítugasta sýning. Stærsta sýning LH á Melum hingað til er Stundum og stundum ekki árið 2009 en þá sýningu sáu rúmlega 2.200 manns á 25 sýningum.Leikarar í sýningunni eru flestallir bændur í Hörgársveit og þegar komið er fram í maí verður að hætta sýningum þar sem sauðburður verður kominn í fullan gang.
Þeim sem ekki komast á sýninguna er bent á vef Hörgársveitar þar sem hægt að nálgast bráðskemmtileg dagatöl þar sem aðalleikararnir úr sýningunni sitja naktir fyrir við bústörfin. Af myndunum að dæma virðast bústörfin vera leikur einn.

mars 2011
Með fullri reisn - auglýsing 7 - smellið HÉR
Með fullri reisn - auglýsing 6 - smellið HÉR
Með fullri reisn - auglýsing 5 - smellið HÉR
Með fullri reisn - auglýsing 4 - smellið HÉR
Með fullri reisn - auglýsing 3 - smellið HÉR

mars 2011
Ávarp á Alþjóðlega leikhúsdeginum 27. mars 2011 - smellið HÉR
Sunnudagurinn 27. mars  er alþjóða leikhúsdagurinn. Í ár er það Stefán Baldursson, leikstjóri og óperustjóri, sem er höfundur ávarps dagsins. Hann hefur starfað sem leikstjóri í fjóra áratugi og á að baki yfir 80 sviðsetningar hérlendis og erlendis. Hann var leikhússtjóri Leikfélags Reykjavíkur frá 1980-1987, þjóðleikhússtjóri frá 1991-2005 og er nú óperustjóri Íslensku óperunnar. Nýjasta leikstjórnarverkefni hans er leikritið Allir synir mínir, sem nú er sýnt í Þjóðleikhúsinu.

mars 2011
FRUMSÝNING
Frumsýning á verkin Með fullri reisn verður fimmtudagskvöldið 3. mars kl. 20:30. Leikritið er eftir Terrence McNally og þýtt af Karli Ágústi Úlfssyni. Leikstjóri er Jón Gunnar Þórðarson og hefur hann, ásamt leikhópnum staðfært verkið heim í sveitina. Verkið fjallar um bændur og landbúnaðinn og hvernig þrengingar þar og í ferðaiðnaðinum reki þá til aðgerða. Ákveða þeir því að halda konukvöld þar sem fötum mun fækka, en hversu langt verður gengið? Átján leikarar stíga á svið, allt frá þrautreyndum áhugaleikurum til nýliða. Upppantað er á níu af fyrstu tólf sýningunum og því er um að gera að panta sæti sem fyrst.

febrúar 2011
Með fullri reisn - auglýsing 2 - smellið HÉR
Með fullri reisn - auglýsing 1 - smellið HÉR

febrúar 2011
Berrassaðir bændur á Glerártorgi
Bændur sem taka þátt í uppsetningu Leikfélags Hörgdæla á leikritinu Með fullri reisn munu verða á Glerártorgi laugardaginn 26 feb. n.k. Frá klukkan 13:30 og frameftir degi munu þeir vera á Glerártorgi og selja nýútkomið dagatal með myndum af sér. Þar verður hægt að fá áritun á dagatalið og einnig verður hægt að panta miða á leiksýninguna Með fullri reisn sem frumsýnd verður 3. mars n.k. að Melum í Hörgárdal.


Sjá hér stjórn og lög félagsins.

Um vefinn



Tilgangur vefsins er að kynna þá þjónustu sem er í boði á Hörgársvæðinu.
Flokkun á þjónustunni efst á vefnum auðveldar leitina að réttu þjónustunni.

Svæði

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf